Í gærkvöld var ég með litla sýningu eða eiginlega frekar opna vinnustofu í
Tapir galleríinu hér í Berlín sem er rekið af sama fólki og er með
Takt listamannaresidensíuna sem ég dvel í.
Tina Hopp var með opnun í aðalrýminu þar sem hún sýndi verkin sín en ég setti dótið mitt upp í næsta rými. Þetta var svona sýnishorn af því sem ég hef verið að gera hérna í Berlín - með áherslu á austur þýsku varðturnana mína.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli