fimmtudagur, 8. ágúst 2013
mánudagur, 5. ágúst 2013
föstudagur, 12. júlí 2013
mánudagur, 1. júlí 2013
mánudagur, 24. júní 2013
laugardagur, 16. febrúar 2013
Roman Signer
Og eitt í viðbót af því þetta er allt saman svo fallegt, fyndið og brillíjant!
Meira um Roman Signer hér.
sunnudagur, 10. febrúar 2013
Mundu mig ég man þig
Nýlega erfði ég tvær eldgamlar póesíbækur. Aðra þeirra (þessa bláu) átti Jóhanna Albertsdóttir, langamma mín á Syðra Hóli og hina átti Arnbjörg Sigurðardóttir, langafasystir mín frá Dagverðareyri.
Það er ekki mikið skrifað í bókina hennar Jóhönnu. En þó eitthvað – og það sem er allra skemmtilegast er að langafi, Magnús Björnsson, hefur skrifað í hana þann 11. mars árið 1914 sem hefur verið 17 ára afmælisdagur Jóhönnu. Þá var hann að ég held kennarinn hennar, 25 ára gamall og kannski orðinn pínu skotinn í henni en þau giftu sig þremur árum síðar.
Bókin hennar Arnbjargar er þéttskrifuð. Nú veit ég ósköp lítið um þessa langafasystur mína annað en að hún dó ógift og barnlaus og hvílir við hliðina á pabba mínum í kirkjugarðinum í Glæsibæ. Hún var fædd árið 1891 og bókin virðist hafa verið í umferð árin 1912 til 1913 þegar hún er rúmlega tvítug. Mig grunar að hún hafi kannski verið einhversstaðar í skóla þennan vetur, án þess þó að ég viti það.
Í bókina skrifa bæði stelpur og strákar. Yfirleitt eru þetta vísur og ljóð eftir þekkta eða óþekkta höfunda og þarna er vitnað í allt frá Hávamálum til spakmæla á ensku! Og Kristján fjallaskáld hefur verið ofboðslega vinsæll. Sumt er greinilega frumort og sumir skrifa undir dulnefni eins og Villigölturinn sem skrifar þessa vísu í bókina:
Ef þú kæra, kyssir mig
kætist brjóstið fremur,
eina skal ég elska þig
uns önnur skárri kemur.
Ég held að póesíbækur séu ekki til lengur. Líklega tók facebook við þessu eins og öllu öðru... Að skrifa í póesíbók er kannski bara eins og að skrifa á vegginn hjá einhverjum og deila "kvótum". Og kannski var langafi bara að "póka" langömmu með þessum vísum sem hann skrifaði.
miðvikudagur, 26. desember 2012
Frost í Mývatnssveit
Ég fór í vinnuferð í Mývatnssveit nokkrum dögum fyrir jól.
Það var 16 stiga frost, logn og allt var svo óskaplega fallegt.
miðvikudagur, 28. nóvember 2012
Það styttist í jólin...
...og allt í einu man ég eftir þessu fína jólatré sem ég rambaði á í eyðimörkinni í Dubai í byrjun árs.
(Ég ætti líklega að skanna þessa filmu inn aftur... án hársins.)
(Ég ætti líklega að skanna þessa filmu inn aftur... án hársins.)
sunnudagur, 11. nóvember 2012
Sunnudagur...
...og það er nóvember og það er kalt.
...og allt í einu langar mig að vera inn í hlýju eldhúsi hjá mömmu og baka lummur og hlusta á Presley lög.
...og allt í einu langar mig að vera inn í hlýju eldhúsi hjá mömmu og baka lummur og hlusta á Presley lög.
mánudagur, 22. október 2012
Teiknidót
Mig langar í plötuspilara.
Kannski ætti ég að fá mér tvo, svo ég geti gert þetta:
Kannski ætti ég að fá mér tvo, svo ég geti gert þetta:
Drawing Apparatus from Robert Howsare on Vimeo.
Fann þetta hér.föstudagur, 19. október 2012
Heimilisfang: ÍSLAND
Mér skilst að jarðarbúar séu um sjö milljarðar talsins.
Af öllum þeim fjölda er ég sú eina sem heiti Þórgunnur Oddsdóttir og ég tilheyri mjög litlum hópi fólks sem býr á þessari eyju úti á hjara veraldar sem kallast Ísland.
Mig hefur lengi langað að gera þessa tilraun. Þetta er svona óvísindaleg athugun á því hvað heimurinn er stór... eða lítill. Og hvort maður er talinn með.
Þetta var einhvernveginn svona:
*** *** ***
Þann 3. otóber síðastliðinn setti ég póstkort í póst á Balí í Indónesíu (sem er mjög langt í burtu). Utan á það skrifaði ég:
ÞÓRGUNNUR ODDSDÓTTIR
ICELAND
Og ekkert meira.
Í kvöld, þegar ég kom heim úr vinnunni í kuldanum, beið þetta sama póstkort eftir mér í póstkassanum á Kleppsvegi milli bæklinga frá Rúmfatalagernum og Elko.
Það er eitthvað dálítið magnað við það að búa á stað þar sem nafn og land dugar sem utanáskrift. Ég efast um að John Smith í Bandaríkjunum gæti leikið þetta eftir.
En hvað skrifar maður svo á póstkort til sjálfrar sín í öðru landi?
Jú einhverja tóma þvælu. Eitthvað sem er nógu trúlegt til þess að starfsfólkið á pósthúsunum fatti ekki að þetta er í rauninni óformleg athugun á því hvað það leggur mikið á sig í vinnunni...

laugardagur, 13. október 2012
föstudagur, 12. október 2012
fimmtudagur, 11. október 2012
Balí og Lombok
Það er einhvernveginn svona að þeysast um sveitir Balí á scooter:
Balí - september 2012 from Thorgunnur Oddsdottir on Vimeo.
Og það er einhvernveginn svona að kíkja á sunnudagsmarkaðinn í Kuta á Lombok:
Sunnudagsmarkaður í Kuta - Lombok from Thorgunnur Oddsdottir on Vimeo.
Og það er einhvernveginn svona að standa á hrísgrjónaakri í Tetebatu á Lombok og hlusta á bænakallið frá moskunni:
Tetebatu from Thorgunnur Oddsdottir on Vimeo.
þriðjudagur, 24. júlí 2012
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)